Bellabogga

Ninný hugarflakkari ferðast um götur heimsins í Reykjavík

föstudagur, ágúst 10, 2007

Foucault: Til hamingju með daginn!

Ef Foucault væri á lífi núna hefði hann þá skroppið í helgarferð til Íslands í tilefni af Gaypride? Með hverjum hefði hann djammað. Hefði hann djammað með Björk, með Jónsa úr Sigurrós, fengið sér kaffi með Helgu Kress og Ástráði Eysteinssyni, komið fram í göngunni í flottu sadó masó fötunum sínum og haldið síðan fyrirlestur morguninn eftir.

Það er ekki laust við að maður lifni við að lesa það sem tengist póststrúktúralismanum.

Ég er ekki með það á hreinu hvort það tengist "karamellusvíns-jólamatur eftir þorláksmessuskötu" áhrifum eða almenn ást mín á Foucault.
Þetta er ekki fjölskyldutengd ást og ekki ást á vini, heldur líkamleg og andleg ást. Sú fullkomnun þegar tengjast líkami og hugur eins og þau hefðu aldrei verið skilin að. Ánægð að hittast loks aftur eftir að hafa verið ranglega aðskilin. Ástríða og analíserandi gangrýni, saman. Hann notar pennann sem sleggju og lætur hann detta af blýþunga niður á orðin og þau klofna þannig að glittir í grófa kristalsáferðina. Þegar ljósið fellur glitrar á mörgum ljósflötum í einu sem myndar harmóníska tónlist ólíkra melódía.Augu mín ná ekki að fókusera á einn stakan ljósglampa heldur skynja ég hvar mætast margir straumar sjávarins og skella á mér í bylgjum. Bylgjum sem leika við líkama minn, strauma sem flæða inn í holrými líkama míns og fara um í sífelldum takti hafsins utan á mér, innan í mér. Það er enginn magi, það ekkert hjarta, það er eru engin lungu, engin húð, enginn hugur; bara vatn. Ó Ó Ó, hve ég elska þig Foucault.

mánudagur, apríl 30, 2007

FERÐALAG UM ÍSLAND

Ég ætlaði að skrifa í stærri stöfum en þetta virðist það eina í boði, eitthvað rugl í blogger.


Nú er ég komin í mitt eigið herbergi, komin með vinnu og vonandi byrja ég bráðum að læra....

Það er gott að vera kominn til Reykjavíkur. Ég labbaði um Reykjavík áðan og það var svo yndislegt hvað allt var kyrrt. Ég er heppin að búa í þeim hluta borgarinnar þar sem gömul hús eru ennþá, en ekki í kringum þessi ljótu ferköntuðu hús sem er verið að byggja út um allt. En já allavega úr pólitískri neikvæðni frústeringunnar.....

Nú er ég komin heim úr ferðalaginu mínu. Það er rosalega gott að koma heim. Ég er svo hrikalega glöð að geta hitt vini mína og fjölskyldu svona oft. Ég hef aldrei verið svo vitlaus að halda að ég geti lifað án þeirra en ég finn það núna að ég get það alls ekki. Ég hef bara fengið staðfestingu á því sem mig var farið að gruna....

Ég er íslensk inni að beini... hvað sem það nú þýðir. Það er erfitt að skilgreina hvað tilheyri íslenskri menningu og hvað ekki. En það hlýtur að tilheyra fólkinu og umhverfi þess. En þegar ég hugsa um eitthvað íslenskt þá hugsa ég um Ísafjörð, að sitja uppi í skíðabrekkunum og horfa yfir eyrina, ég hugsa um hreina loftið..... úff þetta er farið að vera of.......
En það hefur nýlega verið talað mikið um íslenskt eins og þeir sem séu hreinir íslenskir og þeir sem séu það ekki. Íslenskt eins og eitthvað hreint og óblandað.....

En mér finnst eins og mér og mínum hópi hafi verið gleymt. Hvað með okkur sem vorum "hrein íslensk" en erum það ekki lengur! Hvað um okkur sem blönduðumst við það að hafað lifað og elskað í öðru landi?

Þegar ég get vakna ég við Andres Calamaro og hlusta á hann og hlusta á hið æðislega mál frá Argentínu. Í vinnunni þá vinn ég með ítölum og og brasilískri stelpu. Ég nýt þess að tala við þau þar sem ég skil smá úr ítölskunni og af stelpunni sem talar brasilísku.

Ég ætla ekki að vinna allt mitt líf, koma þreytt heim á hverjum degi, deyfa mig niður með sjónvarpi til að komast að því að ég er allt of þreytt tl aðl geta átt eitthvað líf. Ég vil heldur ekki dæma fólk sem gerir það. Það eru miklar kröfur hérna gerðar til fólks og margt fólk þarf mikið að borga. Ég veit ekki hvernig lífið verður þegar ég er komin með börn. Það verður sjálfsagt erfitt. En núna þá ber ég ekki ábyrgð á neinum. Ég get vel lifað með þvi´að vinna hæfilega mikið og hafa frí til að njóta lífisins, án þess að hafa bíl, án þess að hafa eitthvað svaka íbúð, leigja bara og ekki kaupa, allavega í bili, föst í meðalmennskunni.....

En ferðalagið sem lífið er heldur áfram hérna á Íslandi. Hérna á Íslandi er margt fólk sem skiptir mig miklu máli. Ég veit samt ekki hvort þið kannist við það...... en að hitta fólk sem þið hittið í eitt ár, kannski bara í einn mánuð, suma jafnvel bara í fimm tíma, en að þetta fólk hafi mikil áhrif á ykkur og hlutir sem það segir klingir í hausnum á ykkur sífellt. Það myndast einhver svona náttúruleg tengsl sem fá mann til að hugsa og stundum hugsar maður hvort það sé einhver stýring á ákveðna braut.

Ég persónulega trúi þvi að það séu þrír hlutir sem maður eigi að gera við þetta líf og það er að elska, læra og njóta. Ég er frekar efins um þann Guð sem er settur upp af Biblíunni. Vil annars ekki fara nánar út í mínar trúarhugmyndir. En maður veit aldrei og bara svona til vonar og vara, er þá ekki best að reyna að gera sem best úr þessu lífi. Ég bara svona legg fyrir mig það sem er á mínu valdi að gera í þessu lífi. Það meikar ekkert sens að þetta líf hafi verið sett fyrir framan mig án þess að ég ætti að njóta þess og það sem mér finnst auðka mig og gera lífið skemmtilegt hefur verið að elska og læra. Ég veit bara að þegar mér hefur fundist ég stöðnuð þá finnst mér lífið hafa líltinn tilgang.Þegar mér hefur fundist ég mest lifandi er þegar ég er í góðum tengslum við þá sem mér þykir vænt um þannig að ég reyni að gera það. Svona skynja ég lífið. Meðal annars allavega....

Jæja ég ætla að hlusta á brasilíska eða argentínska tónlist, með perúskt teppi í íslensku herbergi sem liggur við hliðina á herbergi fransks stráks og fyrir neðan sænska stelpu, í rúminu mínu sem liggur við hliðina á sófunum sem amma flutti með frá Ísafirði, horfandi á steina sem ég tíndi í ám Argentínu, stillandi mikka mús vekjaraklukkuna mína(hvaðan er hann, hverju sýnist því barni, í hverju landi fyrir sig)...... já ég þarf að vakna á morgun, það er nýr dagur..... á Íslandi. Ég leggst á koddann og loka augunum. Ég hlusta á vindinn og finn svala íslenska loftið við nefið meðan ég ligg undir sænginni. Ég sé ímyndir frá fótboltastrákunum mínum úti í Argentínu, myndir frá vinum mínum úti í Argentínu, ég sé yndislega argentínska fólkið sem ég hitti á hverjum degi, ég sé Seba að hlæja með mér, ég sé Dalí að hlaupa á eftir mér með ekkert nema ást í augunum. Ég anda að mér kald-volga íslenska vorloftinu og hugsa til vikunnar framundan þar sem margt skemmtilegt er í vændum, ein skemmtileg vinkona ætlar að koma í heimsókn, önnur æðisleg ætlar að koma í bæinn, vinnan ætlar að skemmta sér saman og svo margt margt annað sem er ekki einu sinni planað........nýtt fólk og nýjir hlutir á Íslandi....... ferðalagið heldur áfram hér

mánudagur, mars 19, 2007

Komin á klakann!

Jæja komin loksins heim. Það er ekkert smá góð tilfinning....
Margir hugsa að mér hafi boðið vid kalda loftinu eftir vidveru í Argentínu. En tad var svo gott að anda ad sér hreina ferska loftinu hérna.
Á morgun er ammlid hans pabba og tad verður svakalega gaman....
Gott ad koma heim!

fimmtudagur, mars 15, 2007

Hae elskurnar mínar!

Núna er ég í london hjá vini mínum en kem eftir nokkra daga heim!
Ég hlakka svo til ad hitta ykkur. Var komin med svakalega heimtrá. Tad er rosalega gott ad fá ad geta verid hérna adeins samt ádur en ég kem heim tannig ad ég tek mér tíma til ad hugsa ein ádur en ég kem til ykkar ad knúsa ykkur!!!!!!!!!!!!!!!! hlakka svakalega til!!!!!!!!!!!!!!!!!

Rosa stór koss
hafid tad svaka gott
ykkar árny

föstudagur, mars 09, 2007

Fréttir um erjurnar milli Argentínu og Uruguay í íslenskum midlum:

Morgunbladid:

Frétt númer 1
Frétt númer 2

Visir.is

Frétt númer 1

Fleiri fréttir fann ég ekki frá teim...

fimmtudagur, mars 08, 2007


Elsku kisinn minn hann Dalí

Tetta er kisinn sem kaerasti minn keypti fyrir tveimur tremur vikur. Núna er bara ellefu dagar tangad til ég kem heim og bara fimm dagar tangad til ég yfirgef Argentínu. Tad eru blendnar tilfinningar vegna tess ad ég er ad fara. Ad sjálfsogdu verdur mjog erfitt ad fara hédan frá kaerastanum mínum. Tad verdur líka erfitt ad skilja tennan litla saeta trítil hérna eftir. Aej hann er svo gódur... En tad verdur líka alveg ofbodslega gott ad koma heim til Íslands. Ég er núna á fullu ad reyna ad gera tá hluti sem ég tarf ad gera ádur en ég fer hédan.Í gaer kláradi ég kúrsinn minn sem ég hef verid ad taka hér. Gekk bara alveg ágaetlega :)

Núna hef ég nokkra daga til ad kvedja Sebastian, Dalí, vini mína og borgina.

Tetta er eiginlega of skrýtid til ad geta tjád mig mikid um tetta.

En tad verdur gaman ad sjá ykkur tegar ég kem heim, tykir svaka vaent um ykkur sem vitid ad ég elska.

Farid vel med ykkur og sjáumst brádlega!

Ykkar Árný


miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Hae elsku fólk sem les tetta,
mikilvaegt mál sem vardar okkur oll!!!!!


Myndir frá carnavali Gualeguaychú tegar ég fór tangad med Sebastian núna í janúar


Ég er sem stendur úti í Argentínu og hef nú búid í 7 mánudi og kem heim
eftir trjár vikur. Allt í allt hef ég búid hérna í eitt ár og sjo mánudi.
Tad er eitt mál hérna úti sem er mér mjog hjartfólgid.
Tetta er adal pólitíska málid í Argentínu núna en málid er ad auk tess
tekki ég svo margt fólk sem tad snertir persónulega tví kaerastinn minn er
frá héradinu sem hlýtur skadann.
Mér finnst hraedilegt ad finnska fyrirtaekid Botnia og spaenska
fyrritaekid Ence geti komid upp verksmidjum hinum megin vid fljótarbakka
Uruguay áar.
Ég veit ekki hvort tid vitid eitthvad um málid....
En Ence fékk styrk frá Altjódabankanum (50%) til ad koma upp tessari
verksmidju.
Á Spáni hafdi Ence verid med verksmidju en var rekin tadan vegna tess hve
mikid hún hafdi mengad. Henni hafdi verid komid upp í baenum Pontevedra á
Spáni og med tímanum vard fólkid med tímanum tekkt sem fólkid frá "illa
lyktandi baenum". Verksmidjan drap allt líf í kringum og nú er verid ad
reyna ad endurheimta tad líf sem hún drap. En tad verdur aldrei eins.
Med tví ad koma upp tessum verksmidjum brýtur Uruguay sáttmála sem hafdi
gert vid Argentínu til ad vernda árbakka beggja.
Ég sendi ykkur "linkinn" tar sem tid getid séd sáttmálann. Hann er á
spaensku. Veit ekki hvort tid kunnid spaensku eda tekkid einhvern sem kann
spaensku.Sáttmálinn var undirritadur 1975:
http://www.cedha.org.ar/es/iniciativas/celulosa/tratado-del-rio-uruguay.rtf
Argentína kaerdi til Altjódadómstólsins í Haag vegna tessa brots á
sáttmálanum.
En Altjódadómstóllinn felldi tad, rokin voru:
"ad verksmidjurnar muni ekki valda óbaetanlegu tjóni á umhverfinu"
Samkvaemt aedsta rétti Sameinudu Tjódanna tá
"er skadinn sem Argentína segir verda á umhverfinu ekki yfirvofandi tar
sem verksmidjurnar verdi ekki virkar fyrr en eftir tímabilid ágúst 2007 og
júní 2008. "Tess vegna mun dómstóllinn á tessari stundu ekki stoppa af
verksmidjurnar"
(http://www.20minutos.es/noticia/140860/0/papeleras/argentina/uruguay/)

Fyrir fólkid sem býr í Gualeguaychú sem er baerinn sem mun verda fyrir
mesta skadanum vegna verksmidjunnar er tad nú tegar yfirvofandi.
Tessi baer sem er vid árbakkann sem er á móti verksmidjunum(Argentínu
megin) er tekktur fyrir "carnavolin" sín.Í janúar og febrúar fara tangad
marg tugtúsundir manna til ad taka tátt í karnavolunum sem fara fram allar
helgar í tessum fyrrgreindum mánudum. Til tessa baejar streymir mestur
ferdamannastraumurinn í Entre Ríos, einu héradi Argentínu.Margir teirra
sem koma til ad fylgjast med "karnavolunum" enda med tví ad dvelja lengur
til ad njóta náttúrunnar og bada sig vid strendur ÁNNAR.
Tegar ljóst vard hverjar fyriraetlanir Uruguaya yrdu med tví ad koma
verksmidjunum tarna fyrir reis baerinn upp eins og aldrei hefdi verid
búist vid.
Brýrnar sem liggja milli Uruguay og Argentínu hafa verid lokadar af og til
af Argentínubúum í rúm tvo ár. Taer eru alveg lokadar medan
ferdamannastraumurinn hefur verid sem mestur til Uruguay, en í gegnum árin
hafa Uruguayar verid efnahagslega hádir argentínskum ferdamonnum.
Ég var sjálf í Uruguay á ferdalagi tegar teir lokudu brúnnum og fannst
okkur heldur tómlegt í Montevideo, hofudborg Uruguay midad vid
venjulega.Uruguay er svo lítid land. Tad hefur alltaf verid eins og enn
eitt héradid í Argentínu.Tangóinn faedist samstíga í tvíburaborgunum
Montevideo og Buenos Aires. Tad er voda lítill menningarlegur munur á
Argentínu og Uruguay og hafa Argentínubúar alltaf litid á Uruguaya eins og
braedur.
Argentínubúar eru ekki tilbúnir til ad gefast upp og er ótrúlegt hve
mikinn kraft og vald Gualeguaychú hefur áunnid sér bara med tví ad
mótmaela.
Carnaval-drottning Gualeguaychú kom fram fyrir á fundi margra
tjódarleidtoga í Austurríki hálfnakin í carnaval búning med
mótmaelaspjaldi gegn pappírsverksmidjunum. Hún hafdi falid sig inni á
milli ljósmyndara í regnfrakka og á réttu augnabliki tekid af sér frakkann
og gengid ad leidtogunum. Ég laet fylgja med link á ensku:
http://www.greenpeace.org/international/news/south-american-carnival-queen120506
Ýmis gamalmenni Gualeguaychú hofdu einnig bodist til ad hrúga inn á sig
sprengjum til ad fremja sjálfsmordsárás í verksmidjunum.

Núna hefur verksmidjan Ence tegar dregid sig frá fljótinu og breytt um
stadsetningu en Botnia heldur í sína stadsetningu og tad er engin aetlun
ad fara tá leid sem er umhverfisvaenust, tví hún er ad sjálfsogdu of
dýr...
Einnig hefur saensk verksmidja komid sér fyrir vid fljótid sem liggur í
Brasilíu(Sem er í raun sama fljót og tad sem liggur milli Uruguay og
Argentínu) Tannig ad tad lítur út fyrir ad tad eigi ad menga all svakalega
staersta fljót Sudur Ameríku sem skiptir ad vísu um nofn en er sama
fljótid sem liggur nidur med Sudur Ameríku frá Amazon frumskóginum.

Í Gualeguaychú hafa húsin fallid í verdi og morg eru á solu en seljast
ekki. Sagt er ad engin mengun hljóti af verksmidjunni en af hverju draga
tá erlendir adilar(frá Evrópu) sig í hlé med tad ad kaupa afurdir tadan
eins og bláber og nautakjot.
Íbúar baejarins hraedast hungur, sjúkdóma og ad baerinn hverfi eftir eitt
ár tegar verksmidjan byrji ad menga tar...
Ég veit ekki hve mikid er á valdi tínu/ykkar til ad hafa áhrif. En ef tú/tid getur
haft einhver áhrif tá bid ég tig/ykkur ad gera tad...
Med mjog kaerri kvedju frá Argentínu
ég sendi ykkur hérna med auka-link á ensku um málid:
http://news.bbc.co.uk/2/hi/americas/6190665.stm


p.s. ég maeli svakalega med nýjustu mynd snillingsins Pino Solanas tar sem hann fjallar um krísuna hérna í Argentínu árid 2001. Hann fjallar um orsakir og afleidingar krísunnar í argentínu og er myndin hladin myndklippum frá tímabilinu og madur skynjar tetta rosalega vel.
Tetta er mynd sem allir verda ad sjá! Hún er svakalega áhrifarík!
Hún heitir "Memoria del Saqueo".
Hérna ad nedan eru linkar á myndina:
Á Spaensku:
http://www.pinosolanas.com/memoria_info.htm
http://es.movies.yahoo.com/m/memoria-del-saqueo/index-8487.html
http://www.mongrelmedia.com/films/SocialGenocide.html

Njótid tess vel ad upplýsa ykkur elskurnar mínar!